30.03.13 - 22:03
Hafliði Breiðfjörð
Martin O\'Neill rekinn frá Sunderland (Staðfest)

Martin O\'Neill.

Mynd: Getty Images

Martin O\'Neill.

Mynd: Getty Images
Martin O\'Neill hefur verið rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Sunderland en liðið tapaði 1-0 fyrir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag og hefur ekki náð sigri í átta leikjum í röð.
Eftir leik dagsins er liðið aðeins einu stigi frá fallsvæðinu þegar sjö umferðir eru enn eftir af ensku úrvalsdeildinni.
Brottrekstur stjórans var staðfestur á vef Sunderland í kvöld þar sem sagði: ,,Sunderland AFC hefur tilkynnt að félagið hefur sagt skilið við stjórann Martin O\'Neill í dag.\"
,,Félagið vill koma á framfæri þökkum til Martin og óskar honum alls hins besta í framtíðnini. Tilkynning um eftirmann hans mun koma á næstu dögum.\"
Eina mark leiksins í dag var sjálfsmark Titus Bramble.

Heimild: Sky