30.03.16 - 15:52
Elvar Geir Magnússon
Gary Neville rekinn frá Valencia (Staðfest)

Atvinnulaus.

Mynd: Getty Images

Atvinnulaus.

Mynd: Getty Images
Gary Neville hefur verið rekinn sem þjálfari Valencia en hann vann aðeins fjóra deildarleiki af sextán með liðinu. Hann entist í fjóra mánuði í starfinu.
Neville vann sem spakspekingur hjá Sky Sports við miklar vinsældir áður en honum var boðið að taka við Valencia, það var hans fyrsta starf sem knattspyrnustjóri en hann hefur einnig verið í þjálfarateymi enska landsliðsins.

Pako Ayestaran, fyrrum aðstoðarmaður Rafa Benítez hjá Liverpool, tekur við stjórnartaumunum út tímabilið. Hann var aðstoðarþjálfari Valencia 2001-2004.
Neville yfirgefur Valencia í fjórtánda sæti spænsku deildarinnar. Liðið féll úr leik í Meistaradeildinni, Evrópudeildinni og Konungsbikarnum undir stjórn Neville.
Í tilkynningu frá Valencia segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin með hagsmuni félagsins í huga.

Gary Neville has lost his job with Valencia. Always looked a brutally difficult first job. Sure he\'ll bounce back in the stand or studio.
— Gary Lineker (@GaryLineker) March 30, 2016
Amazed and slightly saddened that people seem to be so happy with Neville failing in Spain but whatever makes you feel better about yourself
— Ed Malyon (@eaamalyon) March 30, 2016