Fotbolti.net
30.03.22 - 20:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spænskur markvörður til liðs við Aftureldingu (Staðfest)

Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingu, Esteve Pena og Amir Mehica markmannsþjálfari liðsins

Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingu, Esteve Pena og Amir Mehica markmannsþjálfari liðsins

Canon

Mynd: Afturelding

Lengjudeildin

Esteve Pena hefur skrifað undir samning við Aftureldingu en hann mun taka slaginn með félaginu í Lengjudeildinni í sumar.

Esteve er 24 ára gamall markvörður en hann lék með Cartagena í spænsku B-deildinni á síðustu leiktíð. Hann lék með unglingaliðum Valencia áður.

Hann æfði með Aftureldingu í æfingaferð á Spáni í síðustu viku en hann mun koma til landsins í næstu viku. Tanis Marcellan sem var á milli stanganna hjá Aftureldingu í fyrra mun ekki snúa aftur vegna persónulegra ástæðna.

„Ég á félaga sem hafa spilað á Íslandi og þeir hafa alltaf talað vel um fótoltann á Íslandi og landið. Þegar tækifærið bauðst þá ákvað ég að stökkva á það og semja við Aftureldingu. Ég tel að þetta sé gott tækifæri til að vaxa sem fótboltamaður í nýrri deild og í nýju landi. Ég vonast til að geta hjálpað Aftureldingu að eiga eins gott tímabil og mögulegt er," sagði Esteve við undirskriftina.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.