30.04.13 - 11:05
Magnús Már Einarsson
Halldór Orri í Völsung (Staðfest)

Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson

Mynd: 640.is - Hafþór Hreiðarsson
Völsungur hefur fengið Halldór Orra Hjaltason til liðs við sig á láni frá Þór.
Halldór Orri er tvítugur miðjumaður en hann spilaði 14 leiki með Þór í fyrstu deildinni í fyrra.
,,Ég er mjög ánægður með að vera búinn að fá hann,\" sagði Dragan Stojanovic þjálfari Völsungs við Fótbolta.net í dag.
Völsungur er einnig að ganga frá samningum við framherjann Dejan Bozicic en hann hefur æft og spilað með liðinu að undanförnu.
Dejan er 29 ára gamall Slóveni en hann hefur spilað í heimalandinu, Bosníu og Grikklandi á sínum ferli.