Fotbolti.net
30.04.16 - 06:30
Arnar Geir Halldórsson

Jovan Kujundzic í Hött (Staðfest)

Hattarmenn styrkja sig

Hattarmenn styrkja sig

Canon

Mynd: Twitter

Varnarmaðurinn Jovan Kujundzic hefur verið lánaður til 2.deildarliðs Hattar frá Pepsi deildarliði Víkings R.
Jovan þekkir vel til á Egilsstöðum eftir að hafa leikið með liðinu undanfarin tvö sumur. Í fyrra skoraði hann þrjú mörk í 16 leikjum fyrir Hött í 2.deildinni.

Jovan er fæddur árið 1995 en hann á þrjá landsleiki að baki fyrir U17 ára landslið Íslands.

Höttur endaði í 5.sæti 2.deildar á síðustu leiktíð en liðinu var spáð 7.sæti á komandi leiktíð af fyrirliðum og þjálfurum deildarinnar.

Komnir
Alexander Már Þorláksson frá Fram
Jordan Tyler frá KF
Jökull Steinn Ólafsson frá Fram
Sindri Geirsson frá Þrótti
Jovan Kujundzic frá Víkingi R. (Á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.