Fotbolti.net
30.04.17 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Magnús Anderson lánaður í Ægi (Staðfest)

Úr leik hjá Haukum á undirbúningstímabilinu.

Úr leik hjá Haukum á undirbúningstímabilinu.

Canon

Mynd: Einar Ásgeirsson

Markvörðurinn Magnús Kristófer Anderson hefur verið lánaður frá Haukum í Ægi og mun spilar þar í sumar.

Magnús, sem er fæddur 1997, lék sinn fyrsta keppnisleik í meistaraflokki árið 2015, en í fyrra spilaði hann 13 leiki í Inkasso.
Hann var í samkeppni við Terrance William Dietrich um stöðuna, en nú eru þeir báðir horfnir á braut. Terrance er farinn í Gróttu og Magnús hefur verið lánaður í Ægi eins og hér kemur fram.

Trausti Sigurbjörnsson var fenginn til Haukar og hann mun koma til með að verja mark liðsins í sumar.

Ægir spilar í 3. deild í sumar, en á síðasta tímabilið féll liðið úr 2. deild. Stefnan er að sjálfsögðu sett beint upp aftur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.