30.04.22 - 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Araujo gerir nýjan samning (Staðfest) - „Áhugi frá Englandi truflaði ekki"


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Ronald Araujo hefur skrifað undir samning við Barcelona til ársins 2026. Hann var með samning til ársins 2023.
Ensk félög voru á eftir honum en hann staðfesti það í viðtali eftir að samningurinn var í höfn.
„Ég er mjög ánægður og ég er viss um að það sé rétt ákvörðun að vera áfram því það eru góð ár framundan hjá félaginu. Ég var alltaf viss um að ég vildi vera áfram."
„Það voru stór tilboð erlendis frá en ég er ánægður hja Barcelona. Fjölskyldan mín elskar að vera hér og stuðningsfólkið og samherjarnir hafa alltaf látið mér líða eins og heima hjá mér. Áhuginn frá félögum í úrvalsdeildinni truflaði mig ekki neitt."
Araujo fékk sitt fyrsta tækifæri með aðalliði Barcelona árið 2019 en hann lék með B liðinu árið 2018.
