Raiola er látinn - „Við vorum stolt af honum"


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Umboðsmaðurinn Mino Raiola er látinn aðeins 54 ára að aldri.
Hann gekkst undir aðgerð í janúar en ekki er vitað að svo stöddu hvað hafði verið að hrjá hann.
Ítalskir fjölmiðlar greindu frá því í vikunni að hann væri látinn en þá sagði hann sjálfur að það væri rangt.
Rétt í þessi deildi fjölskyldan hans yfirlýsingu á samfélagsmiðlunum hans þar sem þau tilkynntu um andlát hans.
„Það er af mikilli sorg sem við tilkynnum að umhyggjusamasta manneskja og fótbolta umboðsmaður sé látinn. Mino barðist til enda með sama krafti og hann setti tilboð á borðið til að verja leikmennina okkar. Við vorum stolt af honum en hann gerði sér ekki grein fyrir því," segir meðal annars í yfirlýsingunni.
Það má lesa hana alla hér að neðan. Hann var umboðsmaður Zlatan Ibrahimovic, Paul Pogba, Erling Haaland og fleiri.
Sjá einnig:
Raiola ekki látinn - Í annað sinn sem þeir drepa mig
