Fotbolti.net
30.04.22 - 12:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sjáðu markið: Leikmenn Newcastle ekki sáttir

Sjáðu markið: Leikmenn Newcastle ekki sáttir
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool er komið í forystu eftir rúmlega 20 mínútna leik gegn Newcastle.

Naby Keita skoraði markið eftir að hafa leikið á Martin Dubravka markvörð Newcastle. Leikmenn Newcastle voru ekki sáttir og vildu að markið yrði dæmt ógilt.

Í aðdragandanum náði James Milner boltanum af Fabien Schar með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi slasaðist og töldu leikmenn Newcastle að um brot hafi verið að ræða.

Markið má sjá með því að smella hér.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.