Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
Ólafur Ingi: Einhver narratíva þarna úti sem við erum ekki sammála
Danni Hafsteins: Ég vil spila alla leiki
Lárus Orri: Okkur vantar drápseðli
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Amin Cosic hissa: Klobbaði einn og svo annan, bjóst svo við seinna gula þegar ég var rifinn niður
Jói Kalli ósáttur: Engin regla um hvað boltinn þarf að vera lengi í leik eftir að hagnaði er beitt
Þorri Stefán: Ég hef verið kallaður Joe Gomez Fram-liðsins
Rúnar Kristins: Við höfum fengið fyrirspurnir um Magnús
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
   fim 30. apríl 2026 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Ariela Lewis með verðlaunin.
Ariela Lewis með verðlaunin.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keflavík skoraði átta mörk og Ariela gerði fjögur þeirra.
Keflavík skoraði átta mörk og Ariela gerði fjögur þeirra.
Mynd: Keflavík/Instagram
„Að vera leikmaður umferðarinnar skiptir mig miklu máli. Takk fyrir," segir Ariela Lewis, sóknarmaður Keflavíkur, sem er leikmaður umferðarinnar í Mjólkurbikar kvenna. Hún kom á skrifstofu Fótbolta.net í dag og tók við viðurkenningu þess efnis í formi Hleðslu frá Mjólkursamsölunni.

Ariela gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk þegar Keflavík vann 8-3 sigur á KÞ og kom sér þannig inn í 16-liða úrslitin.

Þetta er klárlega sigur sem Keflavík getur tekið með sér inn í Lengjudeildina sem fer senn að hefjast. „Alveg klárlega. Fyrsti leikurinn okkar er 2. maí gegn Tindastóli og við getum tekið þetta með okkur. Vonandi get ég gert það sama þar."

„Samkeppnin verður mikil en ég hef mikla trú á liðinu okkar. Við höfum undirbúið okkur mikið og ég er mjög ánægð að vera áfram hluti af liðinu."

Hver vill ekki geta sagt það?
Ariela hefur spilað á Íslandi frá 2022 þegar hún gekk í raðir Gróttu. Hún fór svo í Aftureldingu en hefur leikið með Keflavík frá 2024.

Ariela á það líka á ferilskránni að hafa keppt ásamt tvíburasystur sinni um 570 milljónir króna í Squid Game raunveruleikaþætti á Netflix.

„Í fríinu var ég að horfa á sjónvarpsþátt og það var spurt hvort þú gætir unnið 4,56 milljónir dollara? Ég hugsaði að ég gæti það, sótti um og var valin. Þetta var klárlega reynsla og ég get sagt að ég hafi verið í Netflix þætti. Hver vill ekki geta sagt það? Þetta var klárlega áhugavert en ég veit ekki hvort ég muni taka þátt í raunuveruleikasjónvarpi aftur," sagði Ariela og hló en hún vann því miður ekki allar þessar milljónir.

Allt viðtalið er hægt að sjá í spilaranum hér að ofan en þar ræðir Ariela meðal annars líka um sumarið sem er framundan hjá Keflvíkingum.
Slapp
banner
banner
banner