30.05.13 - 06:18
Brynjar Ingi Erluson
Mark Hughes ráðinn knattspyrnustjóri Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Mark Hughes hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Stoke City á Englandi, en fréttastofa Skysports greinir frá þessu nú árla morguns.
Tony Pulis var látinn taka poka sinn hjá Stoke City á dögunum eftir slaka frammistöðu í ensku úrvalsdeildinni, en liðið hafnaði í 13. sæti deildarinnar.
Eftir miklar vangaveltur um stjórastöðu liðsins þá hefur félagið ráðið nýjan stjóra, en Mark Hughes hefur tekið við keflinu.
Hann stýrði síðast liði QPR í ensku úrvalsdeildinni, en var rekinn í nóvember og tók þá Harry Redknapp við stöðunni, sem tókst þó ekki að bjarga liðinu frá falli.
Hughes hefur stýr mörgum liðum, en hann hefur stýrt Manchester City, Fulham og Blackburn Rovers á ferlinum ásamt því sem hann þjálfaði velska landsliðið.
Stjórinn verður kynntur klukkan 11:00 hjá félaginu, en ljóst er að hans bíður afar verðugt verkefni.