Fotbolti.net
30.05.14 - 11:02
Magnús Már Einarsson

Wenger gerir nýjan samning við Arsenal (Staðfest)

Arsene Wenger.

Arsene Wenger.

Canon

Mynd: Getty Images

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið.
Wenger er nú samningsbundinn félaginu til sumarsins 2017.

Vangaveltur hafa verið með framtíð Wenger undanfarna mánuði en hann hefur nú bundið enda á þær með því að skrifa undir nýjan samning.

Arsenal endaði í 4. sæti í ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili og náði að landa sínum fyrsta titli síðan árið 2005 þegar liðið varð bikarmeistari á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.