Fotbolti.net
30.05.20 - 20:02
Ívan Guðjón Baldursson

Æfingaleikir: KA lagði Fylki - Haukar unnu Þrótt

Æfingaleikir: KA lagði Fylki - Haukar unnu Þrótt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Æfingaleikjum dagsins er flestum lokið og voru úrslit að berast úr nokkrum þeirra.
Stærsti leikur dagsins og jafnframt eini efstudeildarslagurinn var á Akureyri þar sem KA lagði Fylki að velli.

Varnarmaðurinn ungi Brynjar Ingi Bjarnason gerði eina mark leiksins með skalla eftir langt innkast frá Mikkel Qvist.

Sjáðu rosalegt innkast hjá nýjum leikmanni KA

Leikurinn var sýndur beint á KATV og má sjá sigurmarkið hér fyrir neðan.

KA 1 - 0 Fylkir
1-0 Brynjar Ingi Bjarnason

Páll Hróar Helgason gerði þá eina mark leiksins er Haukar lögðu Þrótt R. að velli í Lengjudeildarslag.

Liðin mættust í tvígang í gömlu Inkasso-deildinni í fyrra en þá höfðu Þróttarar betur bæði heima og utan, með fjórum mörkum gegn tveimur.

Haukar 1 - 0 Þróttur R.
1-0 Páll Hróar Helgason

Fjarðabyggð lagði þá Einherja að velli í hörkuleik þar sem liðin skiptust á að skora. Todor Hristov skoraði tvennu fyrir Einherja.

GG sigraði svo Ísbjörninn er liðin mættust í Grindavík. Hægt er að sjá mörkin neðst í fréttinni.

Fjarðabyggð 4 - 3 Einherji
1-0 Filip Sakaluk
1-1 Todor Hristov
1-2 Todor Hristov
2-2 Guðjón Máni Magnússon
3-2 Hákon Huldar Hákonarson
4-2 Birkir Ingi Óskarsson
4-3 Markaskorara vantar

GG 3 - 1 Ísbjörninn



Æfingaleikir: KA lagði Fylki - Haukar unnu Þrótt
Canon

Mynd: Hulda Margrét / Haukar

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.