ÍA 2 -1 Víkingur Ó.
1-0 Viktor Jónsson
1-1 Indriði Áki Þorláksson
2-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson, víti
1-0 Viktor Jónsson
1-1 Indriði Áki Þorláksson
2-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson, víti
ÍA lagði Víking Ólafsvík í leik sem fram fór á Akranesvelli í dag. Það var ekki eins og um æfingaleik eða vináttuleik væri um að ræða þar sem mikil harka var í leiknum.
Viktor Jónsson kom Skagamönnum yfir undir lok fyrri hálfleiks, en tiltölulega snemma í þeim seinni jafnaði Indriði Áki Þorláksson fyrir Ólsara.
Tryggvi Hrafn Haraldsson, sem lögðu fram tilboð í, skoraði sigurmark ÍA úr vítaspyrnu þegar lítið var eftir.
Dómari leiksins, Ívar Orri Kristjánsson, hafði nóg að gera og fór meðal annars rautt spjald á loft. Sindri Snær Magnússon, miðjumaður ÍA, fékk það fyrir groddaralega tæklingu á fyrrum liðsfélaga sínum, Gonzalo Zamorano. Nokkrum sekúndum síðar hefði Gonzalo líklega átt að fá rautt spjald sjálfur fyrir ljóta tæklingu, en hann slapp.
ÍA leikur í Pepsi Max-deildinni í sumar, en Víkingur Ólafsvík er í Lengjudeildinni.
Það helsta úr æfingaleik ÍA gegn Víkingum frá Ólafsvík #fotboltinet pic.twitter.com/ub0R4LG9jo
— ÍATV (@ia_sjonvarp) May 30, 2020
“Æfingaleikur” af gamla skólanum uppá Skaga, djöfull er gaman að horfa á þetta.
— Albert Hafsteinsson (@albert_hafst) May 30, 2020
ÍA vs Víkingur Ó er æfingaleikur. Alls ekki vináttuleikur. #fotboltinet
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) May 30, 2020
Few crazy challenges going in for a pre season friendly😬#skagamenn #preseason
— Skagamenn UK 🇮🇸🏴⚽️ (@SkagamennUK) May 30, 2020
Athugasemdir