Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 30. maí 2020 18:03
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu lætin á Akranesi í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA lagði Víking Ólafsvík að velli í æfingaleik í dag, með tveimur mörkum gegn einu, og var ÍATV að sjálfsögðu að mynda leikinn.

Skagamenn komust yfir í fyrri hálfleik en gestirnir jöfnuðu í þeim síðari.

Það hitnaði heldur betur í kolunum þegar Gonzalo Zamorano, sem lék fyrir ÍA í fyrra, var straujaður af Sindra Snæ Magnússyni.

Sindri fékk að líta beint rautt spjald en nokkru síðar átti Gonzalo sjálfur slæma tæklingu og var heppinn að halda sér inni á vellinum.

Átök brutust út eftir tæklingu Gonzalo þar sem menn virtu tveggja metra regluna að vettugi. Hægt að sjá allt það helsta úr leiknum hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner