PSG vann Meistaradeildina annað árið í röð eftir sigur á Arsenal í úrslitum í kvöld. Liðið vann öruggan 5-0 sigur á Inter í fyrra.
Kai Havertz kom Arsenal yfir snemma leiks en Ousmane Dembele jafnaði metin úr vítaspyrnu. Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem varnarmaðurinn Gabriel klikkaði á síðustu spyrnunni.
Kai Havertz kom Arsenal yfir snemma leiks en Ousmane Dembele jafnaði metin úr vítaspyrnu. Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem varnarmaðurinn Gabriel klikkaði á síðustu spyrnunni.
Luis Enrique, stjóri PSG, var að vonum í skýjunum eftir leikinn.
„Þetta er stærra en í fyrra því við vissum hversu erfitt það væri að spila gegn Arsenal fyrir leikinn. Það er ótrúlegt fyrir félagið og borgina að vinna og við áttum það skilið miðað við tímabilið. Úrslitaleikurinn var alvöru bardagi," sagði Enrique.

