Fotbolti.net
30.06.19 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Aribo valdi Rangers framyfir Celtic og Aston Villa (Staðfest)

Gerrard sannfærði hann

Aribo er til vinstri og Lyle Taylor með útbreiddan faðminn til hægri.

Aribo er til vinstri og Lyle Taylor með útbreiddan faðminn til hægri.

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Joe Aribo er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við skoska félagið Rangers, þrátt fyrir áhuga frá Aston Villa og Celtic.
Aribo verður 23 ára í júlí og kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Charlton rann út. Hann hefur verið lykilmaður í liði Charlton undanfarin ár en hóf ferilinn hjá utandeildarliði Staines Town.

Hann segir að Steven Gerrard, stjóri Rangers, hafi sannfært sig um að velja félagið framyfir Celtic.

„Ég valdi Rangers því það er stórt félag og útaf stjóranum. Ég spjallaði við hann og var sannfærður, hann sagði að þetta væri besti staðurinn fyrir mig og ég treysti honum," sagði Aribo.

Celtic er besta liðið í Skotlandi og hefur verið undanfarin ár en Rangers er í mikilli sókn og gæti strítt erkifjendunum á komandi tímabili.

Aribo þykir afar öflugur og skoraði 10 mörk í 39 leikjum á liðnu tímabili. Hann var í lykilhlutverki er Charlton vann umspilið í ensku C-deildinni og kom sér aftur upp í Championship.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.