Fotbolti.net
30.06.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Genoa krækir í Andrea Pinamonti frá Inter (Staðfest)

Cristian Zapata er einnig mættur

Genoa krækir í Andrea Pinamonti frá Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Genoa var nálægt því að falla úr Serie A á síðustu leiktíð og bjargaði sér þrátt fyrir að hafa selt sinn helsta markaskorara, Krzysztof Piatek, til AC Milan fyrir 35 milljónir evra.
Nú er félagið búið að vera að spreða peningunum og festi kaup á sóknarmanninum unga Andrea Pinamonti í dag.

Pinamonti er tvítugur sóknarmaður sem gerði 5 mörk í 27 leikjum að láni hjá Frosinone á síðustu leiktíð. Hann var aðalmaðurinn í U20 liði Ítalíu en komst ekki á EM U21 árs landsliða í sumar vegna meiðsla. Hann hefur skorað 25 mörk í 66 leikjum með unglingaliðum Ítalíu.

Genoa greiðir 18 milljónir evra fyrir framherjann og fer helmingurinn af þeirri upphæð til Chievo vegna ákvæðis í fyrri kaupsamning. Inter keypti Pinamonti af Chievo sumarið 2013, þegar hann var 14 ára gamall. Inter hefur forkaupsrétt á leikmanninum.

Pinamonti er þó sjöundi leikmaðurinn sem Genoa fær til liðs við sig eftir janúargluggann. Lukas Lerager kostaði 7 milljónir evra og Stefano Sturaro 16 eftir að félagið ákvað að nýta kauprétt á lánssamningum þeirra. Þá er Luca Mazzitelli kominn frá Sassuolo fyrir 8 milljónir og Mattia Zennaro frá Venezia fyrir 3.

Lán Andrea Favilli var framlengt, Pawel Jaroszynski kom frítt frá Chievo og Filip Jagiello kom frá Zaglebie Lubin en kaupverðið er ekki gefið upp. Félagið er aðeins búið að losa sig við tvo leikmenn, Nicolas Spolli fór frítt og Eddie Salcedo til Inter fyrir 8 milljónir.

Þá er varnarmaðurinn reyndi Cristian Zapata kominn frítt eftir að samningur hans við AC Milan rann út.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.