30.06.19 - 20:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kostas Manolas til Napoli (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gríski varnarmaðurinn Kostas Manolas er genginn í raðir Napoli frá Roma. Kaupverðið er sagt vera 36 milljónir evra.
Hinn 28 ára gamli Manolas skrifar undir fimm ára samning við Napoli.
Koma hans til Napoli gæti orðið til þess að miðjumaðurinn Amadou Diawara fari í hina áttina fyrir 21 milljón evra. Þá er líklegt að Raul Albiol fari frá Napoli til Villarreal.
Manolas var í fimm ár hjá Roma og hefur hann verið orðaður við stórlið í Evrópu síðustu sumur. Frægt er þegar hann fullkomnaði endurkomu Roma gegn Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar 2017/18.
Roma mætti Liverpool í undanúrslitum og þar var reyndar Manolas gagnrýndur harkalega af Óskari Hrafni Þorvaldssyni.