Fotbolti.net
30.06.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Sampdoria fær Audero og fjóra í viðbót (Staðfest)

Audero á 35 leiki að baki fyrir yngri landslið Ítalíu.

Audero á 35 leiki að baki fyrir yngri landslið Ítalíu.

Canon

Mynd: Getty Images

Sampdoria hefur fest kaup á markverðinum öfluga Emil Audero sem gerði frábæra hluti að láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.
Audero, 22 ára, kemur frá Juventus og kostar 20 milljónir evra. Hann er langt frá því að vera eini leikmaðurinn sem hefur bæst við raðir félagsins.

Samp er búið að ganga frá kaupum á hægri bakverðinum Fabio Depaoli sem hefur verið einn af betri leikmönnum Chievo undanfarin ár. Hann er 22 ára og kostar 5 milljónir evra.

Julian Chabot kemur frá Groningen á 3,5 milljónir. Hann er hávaxinn varnarmaður sem á leiki að baki fyrir yngri landslið Þýskalands.

Morten Thorsby, sem þótti ein helsta vonarstjarna Noregs fyrir fimm árum, er kominn á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Heerenveen rann út. Hann spilar sem miðjumaður, rétt eins Argentínumaðurinn Gonzalo Maroni sem kemur á lánssamningi frá Boca Juniros.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.