Fotbolti.net
30.06.19 - 14:32
Ívan Guðjón Baldursson

Schalke vann kapphlaupið um nýliða ársins (Staðfest)

Ozan Kabak var nýliði ársins í Þýskalandi.

Ozan Kabak var nýliði ársins í Þýskalandi.

Canon

Mynd: Getty Images

Schalke stóð uppi sem sigurvegari í kapphlaupinu um tyrkneska ungstirnið Ozan Kabak. AC Milan og West Ham voru á höttunum eftir honum og sýndi FC Bayern einnig áhuga.
Schalke borgar 15 milljónir evra fyrir þennan öfluga miðvörð sem var meðal bestu varnarmanna þýsku deildarinnar í ár. Hann var valinn nýliði ársins í Búndeslígunni þrátt fyrir að hafa aðeins spilað hálft tímabilið. Hann var valinn á undan mönnum á borð við Achraf Hakimi, Dodi Lukebakio og Reiss Nelson. Jadon Sancho var ekki gjaldgengur því hann hefur verið hjá Dortmund síðan 2017.

Það sem gerir þetta afrek enn merkilegra er það að Kabak var 18 ára og lék fyrir Stuttgart, sem féll úr efstu deild. Hann átti 19 ára afmæli í mars.

Kabak er mikill markaskorari þrátt fyrir að vera miðvörður og skoraði hann þrisvar í fimmtán deildarleikjum með Stuttgart. Auk þess hefur hann gert 13 mörk í 57 landsleikjum með yngri liðum Tyrkja.

Kabak skrifar undir fimm ára samning við Schalke og þarf félagið að passa sig að setja hátt riftunarákvæði í samning hans. Stuttgart klikkaði á því og þess vegna var hann falur fyrir svo lítið sem 15 milljónir.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.