Fotbolti.net
30.06.19 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Sevilla borgar 30 milljónir fyrir Dabbur og Jordan (Staðfest)

Sevilla borgar 30 milljónir fyrir Dabbur og Jordan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Það hefur verið nóg að gera í herbúðum Sevilla í sumar eftir endurkomu Monchi til félagsins.
Félagið er búið að selja Luis Muriel til Atalanta og Quincy Promes til Ajax fyrir rúmlega 30 milljónir evra samtals.

Þrír leikmenn eru komnir inn í staðinn og kostaði hver þeirra 15 milljónir. Diego Carlos var staðfestur fyrr í mánuðinum sem dýrasti leikmaður til að vera seldur frá Nantes.

Hinir tveir eru Moanes Dabbur og Joan Jordan. Dabbur er ísraelskur sóknarmaður sem kemur frá Red Bull Salzburg. Þar skoraði hann 72 mörk í 126 leikjum á þremur árum, auk þess að gera 20 mörk í 41 leik í Evrópudeildinni.

Dabbur er 27 ára og skoraði 37 mörk í 48 leikjum á nýliðnu tímabili. Jordan er tveimur árum yngri og var eftirsóttur af West Ham í sumar. Hann vildi vera áfram á Spáni og valdi því Sevilla.

Hann á tvo landsleiki að baki fyrir Katalóníu og hefur verið fastamaður á miðjunni hjá Eibar síðustu tvö tímabil.

Sevilla endaði í sjötta sæti í deildinni í fyrra og tekur því þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í haust.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.