Fotbolti.net
30.06.19 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Timothy Weah kominn til Lille (Staðfest)

Timothy Weah kominn til Lille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Lille er búið að festa kaup á Timothy Weah, 19 ára framherja PSG og bandaríska landsliðsins.
Lille, sem kom á óvart og endaði í 2. sæti frönsku deildarinnar, borgar 10 milljónir evra fyrir Weah.

Weah gerði 4 mörk í 17 leikjum að láni hjá Celtic fyrr á þessu ári en þar áður hafði hann gert 2 mörk í 6 leikjum hjá PSG.

Hann á 8 A-landsleiki að baki fyrir Bandaríkin og hefur skorað eitt mark. Hann skoraði tvö mörk í fjórum leikjum fyrir U20 landslið Bandaríkjanna á HM í maí og júní.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.