30.06.19 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Valencia kaupir Cheryshev (Staðfest)

Cheryshev spilaði sjö leiki í Evrópudeildinni á síðasta tímabili. Hann skoraði eitt mark, á útivelli gegn Celtic.

Mynd: Getty Images

Rússneski kantmaðurinn Denis Cheryshev er genginn til liðs við Valencia eftir að hafa hrifið Marcelino þjálfara á síðasta tímabili.
Cheryshev var að láni hjá félaginu með kaupmöguleika. Ekki er greint frá því hvort Valencia hafi nýtt kaupmöguleikann en kaupverðið er sagt vera 6 milljónir evra.
Cheryshev ólst upp hjá Real Madrid frá tólf ára aldri og þótti gífurlega mikið efni. Hann gerði góða hluti með B-liði Real en þegar kom að stökkinu upp í aðalliðið meiddist hann.
Hann hefur glímt við meiðslavandræði síðan og ekki tekist að spila yfir 30 deildarleiki á tímabili. Hann lék þó 27 leiki í deild á nýliðnu tímabili, 7 í bikar og 7 í Evrópudeildinni.
Cheryshev er 28 ára landsliðsmaður Rússlands sem sló í gegn á HM í fyrra. Hann hefur skorað 9 mörk í síðustu 13 landsleikjum sínum en í heildina á hann 22 landsleiki að baki.