30.06.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Vanheusden dýrastur í sögu belgíska boltans (Staðfest)

Vanheusden með U21 landsliði Belgíu.

Mynd: Getty Images

Vanheusden með U21 landsliði Belgíu.

Mynd: Getty Images
Standard Liege er búið að festa kaup á Zinho Vanheusden, ungum varnarmanni sem kemur frá Inter.
Belgíska félagið borgar 12,5 milljónir evra fyrir táninginn sem verður tvítugur í júlí. Vanheusden er því orðinn dýrasti leikmaður í sögu belgíska boltans.
Vanheusden er uppalinn hjá Standard en var seldur til Inter fyrir eina milljón sumarið 2015. Inter hefur þróað hann síðan og gerði hann góða hluti að láni hjá Standard á síðustu leiktíð. Hann lék lykilhlutverk í hjarta varnarinnar og ákvað félagið því að slá til og kaupa hann til baka.
Inter hefur kauprétt á Vanheusden er upphæðin er ekki gefin upp. Ítalska félagið má ekki nýta þennan kauprétt fyrr en 2021 í fyrsta lagi.
Miðvörðurinn öflugi á yfir 40 leiki að baki fyrir yngri landslið Belgíu.