Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 30. júní 2020 11:51
Magnús Már Einarsson
17 ára Ísak Bergmann í liði umferðarinnar í Svíþjóð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hinn 17 ára gamli Ísak Bergmann Jóhannesson er í liði umferðarinnar í sænsku úrvalsdeildinni.

Ísak var í fyrsta skipti í byrjunarliði Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í 4-2 sigri á Östersund um helgina.

Ísak þakkaði fyrir traustið með því að leggja upp tvö mörk í leiknum.

Í fyrra var Ísak sextán ára þegar hann spilaði fyrstu leiki sína með Norrköping en hann kom til félagsins frá ÍA um veturinn.



Athugasemdir
banner
banner