Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 30. júní 2020 15:24
Magnús Már Einarsson
Arnar Freyr líklega frá í tvo mánuði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður HK, verður væntanlega frá keppni næstu tvo mánuðina vegna meiðsla sem hann varð fyrir gegn FH á dögunum.

Arnar tognaði illa aftan í læri en þetta staðfesti Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, í samtali við Vísi í dag.

Sigurður Hrannar Björnsson hefur varið mark HK í síðustu leikjum og Brynjar Björn segir að hann fái traustið áfram í næstu leikjum.

Valgeir Valgeirsson hefur misst af síðustu tveimur leikjum HK vegna meiðsla sem hann varð fyrir í 3-0 sigrinum á KR en það styttist í endurkomu hans.

„Valgeir er að koma til. Þetta gætu verið 1-2 dagar eða 4-5 dagar. Það er erfitt að segja,“ sagði Brynjar við Vísir en næsti leikur HK er gegn nýliðum Gróttu á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner