Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 30. júní 2020 22:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stefán Ingi lánaður til Grindavíkur (Staðfest)
Lengjudeildin
Úr leik Grindavíkur og Þórs fyrr í sumar.
Úr leik Grindavíkur og Þórs fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Grindavík hefur fengið Stefán Inga Sigurðarson að láni frá Breiðabliki.

Stefán Ingi varð nítján ára í janúar og er hann hávaxinn framherji.

Hann lék á sínum tíma níu leiki með U16 ára landsliði Íslands og fimm leiki með U17. Í leikjunum fjórtán skoraði hann þrjú mörk.

Stefán lék á dögunum með Breiðabliki í bikarnum gegn Keflavík og skoraði fyrsta mark leiksins með skalla. Á síðustu leiktíð lék hann að láni hjá Augnablik og skoraði þrjú mörk í fjórum leikjum í 3. deildinni.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner