Þróttur Vogum hefur fengið miðvörðinn Ethan Patterson í sínar raðir fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.
Ethan er 19 ára gamall en hann á að baki leiki með U19 ára landsliði Norður-Íra.
Ethan var í U18 og U23 ára liði Aston Villa en síðastliðið árið hefur hann spilað með Plunkett í heimalandi sínu.
Þróttur Vogum er með tvö stig eftir tvo leiki í 2. deildinni en næsti leikur liðsins er gegn Haukum á föstudaginn.
Athugasemdir