Fotbolti.net
24.06.26 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson

HM boltinn gagnrýndur - „Það er eitthvað að“

Kylian Mbappe með Trionda-boltann

Kylian Mbappe með Trionda-boltann

Canon

Mynd: EPA

Joe Hart, fyrrum markvörður Manchester City og enska landsliðsins, segir eitthvað vera að boltanum sem er notað á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
HM-boltinn í ár heitir Trionda og var hannaður úr fjórum hlutum með sérstökum línum sem eiga að auka stöðugleika hans í loftinu.

Margir muna eftir umræðunni um Jabulani-boltann á HM 2010, sem þótti afar óútreiknanlegur og skapaði flökt í loftinu sem markverðir réðu illa við.

Hart segir umræðuna nú vera komna aftur af stað, enda hafi hann séð mörg mörk á mótinu þar sem markverðir hefðu undir venjulegum kringumstæðum átt að verja skotin en boltinn verið óviðráðanlegur.

„Ég er allt of oft að sjá svona mörk á heimsmeistaramótinu til þess að það sé ekki eitthvað að þessum bolta. Þetta er að gerast þegar boltinn er í axlarhæð, þegar menn eru ekki að reyna að setja snúning á hann og hann hreyfist varla í loftinu. Þá lenda markverðirnir í vandræðum.“

„Kylian Mbappe fær boltann fyrir fætur sér og það eru nokkrir varnarmenn sem gætu verið fyrir. Það gerir Ahmed þetta erfitt en hann er með augun á boltanum frá fyrsta augnabliki. Horfið á stefnu boltans; það er nánast engin hreyfing á honum.“

„Boltinn fer ekki beint upp í hornið og þetta er ekki markverðinum að kenna. Ég hef séð þetta hjá Mendy, Zidane og Pickford, sem ná ekki að tímasetja vörslurnar rétt þegar HM-boltinn er fyrir ofan axlarhæð og án snúnings.“

„Um leið og boltinn fer af fæti Mbappe ætti markvörður á HM að geta tekið skref og kastað sér, en boltinn virðist vera kominn upp að honum áður en hann nær einu sinni að bregðast við.“

„Hversu oft sérðu markvörð á hæsta getustigi snerta boltann en samt enda hann í netinu? Mjög sjaldan, því þeir eru nógu góðir til að blaka honum til hliðar ef þeir ná snertingu,“ sagði Hart.

Hart er þar að tala um langskot Kylian Mbappe gegn Senegal og eitt af þremur mörkum Lionel Messi gegn Alsír, auk fleiri marka á mótinu.

„Á þessu móti hef ég tekið eftir því að markverðirnir ná snertingu á boltann en geta samt ekki haldið honum úr netinu. Það er eitthvað að og líklega snýst þetta um hvernig markverðir lesa boltann.

„Þú sérð boltann, stillir þér upp, tekur ákvörðun og kastar þér á eftir honum. Á þessu móti eru markverðirnir að koma sér í stöðu og kasta sér á eftir boltanum en það passar einfaldlega ekki við það sem þeir eru vanir dags daglega,“ sagði Hart að lokum.
Luca Zidane handsamar boltann gegn Argentínu

Luca Zidane handsamar boltann gegn Argentínu

Canon

Mynd: EPA

Joe Hart segir eitthvað að HM-boltanum

Joe Hart segir eitthvað að HM-boltanum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.