Fotbolti.net
30.06.26 - 17:32
Runólfur Trausti Þórhallsson

Ekki aðeins mark­verðir í vand­ræðum með HM boltann

Ekki aðeins mark­verðir í vand­ræðum með HM boltann
Canon

Mynd: EPA

Adidas Trionda boltinn sem notaður er á HM hefur verið mikið til umræðu undanfarnar vikur þar sem markmenn mótsins hafa margir hverjir litið heldur klaufalega út. Eftir vítaspyrnukeppnir á þriðjudagskvöld virðist þó sem útileikmenn séu einnig í ákveðnum vandræðum með boltann í ár.
Ekki er langt síðan fjallað var um skoðanir Joe Hart, fyrrverandi markvarðar Manchester City og enska landsliðsins, á boltanum sem notaður er á HM í ár. Síðan þá hefur Kasper Schmeichel, fyrrverandi markvörður Leicester City ásamt fleiri liða og danska landsliðsins, tekið undir það sem Hart sagði.

Ásamt því að ræða hvernig boltinn er settur saman - líkt og Hart gerði þá ræðir Schmeichel einnig um loftslagið á mótinu. Þar sem mótið fer fram víðs vegar um Bandaríkin ásamt Kanada og Mexíkó þá geta lið lent í því að loftslagið breytist gríðarlega milli leikja.

Markvörðurinn fyrrverandi útskýrir að í ákveðnum loftþéttleika geti það gerst að boltinn snúist ekki jafn mikið og venjulega ásamt því að fara örlítið hraðar yfir.

„Málið er að við viljum sjá mörk svo þeir framleiða bolta sem er hannaður til að skora mörk. Sem markvörður verður þú að vinna heimavinnuna þínar [þegar kemur að boltanum sem spilað er með].“

Þar sem það eru svo margir boltar í notkun í hverjum leik getur gripið breyst bolta frá bolta. Þá eru nýir boltar notaðir í hverri umferð útsláttarkeppninnar.

@bbc5livesport Big differences with this World Cup ball? ?? Kasper Schmeichel on the construction of it, less drag and why goalkeepers might be having problems ???? #FIFAWorldCup #WorldCup ? original sound - BBC 5 Live Sport


Hingað til hafa aðeins markverðir tuðað yfir hvernig boltinn er hannaður en ef til vill hafa Hollendingar og Þjóðverjar eitthvað að kvarta yfir nú eftir að þjóðirnar féllu úr leik í 32-liða úrslitum eftir vítaspyrnukeppni. Holland gegn Marokkó og Þýskaland gegn Paragvæ.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.