Fotbolti.net
22.06.26 - 12:12
Kári Snorrason

Íranir skildu eftir handskrifuð skilaboð í klefanum eftir leik

Handskrifaða bréfið má sjá neðst í fréttinni.

Handskrifaða bréfið má sjá neðst í fréttinni.

Canon

Mynd: EPA

Íran skildi eftir handskrifað skilaboð í búningsklefa sínum eftir markalaust jafntefli gegn Belgíu í gær. Í skilaboðunum stóð meðal annars: „Megi friður, virðing og vinátta ríkja milli allra þjóða.“
Þá þökkuði Íranir Los Angeles fyrir góðar móttökur og írönskum stuðningsmönnum fyrir stuðninginn. Þátttaka Írans á mótinu hefur verið strembin vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum og spennu í samskiptum Írans og Bandaríkjanna.

Þjálfari Írans sagði liðið það kúgaðasta á HM eftir leikinn gegn Nýja Sjálandi í fyrstu umferð riðlakeppninnar. Liðið æfir og dvelur í Tijuana í Mexíkó, þrátt fyrir að spila leikina í Bandaríkjunum.

Nú eru viðræður í gangi um mögulegar breytingar á ferðafyrirkomulagi liðsins fyrir síðasta riðlaleikinn gegn Egyptalandi. Íran er með tvö stig eftir tvær umferðir.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Íranir skildu eftir handskrifuð skilaboð í klefanum eftir leik
Canon

Mynd: Skjáskot

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.