30.07.13 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Geir Kristinsson í Þrótt (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur hefur fengið Geir Kristinsson á láni frá Fjölni út þetta tímabil.
Geir er varnarmaður sem er fæddur árið 1990 en hann er uppalinn hjá Fjölni.

Í sumar hefur hann komið við sögu í einum leik í 1. deildinni og einum leik í Borgunarbikarnum með Fjölni.
Geir var í láni hjá Völsungi sumarið 2010 og Árborg 2011 en hann hefur samtals skorað fjögur mörk í 67 deildar og bikarleikjum á Íslandi.
Geir gæti leikið sinn fyrsta leik með Þrótti þegar liðið heimsækir Tindastól á morgun.