Fotbolti.net
30.07.13 - 14:56
Magnús Már Einarsson

Geir Þorsteins sendi bandaríska knattspyrnusambandinu bréf

Geir Þorsteinsson.

Geir Þorsteinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sendi í morgun Sunil Gulati forseta bandaríska knattspynusambandsins bréf vegna Arons Jóhannssonar.

Aron sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hann sagðist hafa ákveðið að gefa kost á sér í bandaríska landsliðið. KSÍ sendi frá sér yfirlýsingu á móti í dag þar sem Aron er hvattur til að endurskoða ákvörðun sína.
Geir sendi Gulati bréf og óskaði eftir því að bandaríska knattspyrnusambandið hætti við að fá Aron í landslið sitt.

,,Ég sendi kollega mínum bréf í dag þar sem ég óskaði eftir að þeir féllu frá þessum áformum. Hann hefur ekki svarað því ennþá,\" sagði Geir í viðtali við Harmageddon á X-inu í dag.

,,Ég er mjög ósáttur við framkomu Bandaríkjamanna. Þeir hafa mikið úrval leikmanna, örugglega hundruð þúsunda og eru að byggja upp sina atvinnuknattspyrnu og yngri knattspyrnu. Þeir eiga að leita inn á við til að skapa sína eigin knattspyrnumenn.\"

Sjá einnig:
Geir Þorsteinsson: Afskræming á reglum FIFA
KSÍ óskar eftir að Aron skipti um skoðun
Heimir Hallgríms: Aron mjög heiðarlegur við okkur
Aron hringdi í Lars og tjáði honum ákvörðunina
Aron Jóhannsson velur bandaríska landsliðið (Staðfest)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.