30.07.13 - 18:30
Hafliði Breiðfjörð
Halldór Orri í Dalvík/Reyni (Staðfest) - Á reynslu í Noregi

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Dalvík/Reynir hefur fengið miðjumanninn Halldór Orra Hjaltason á láni frá Þór.
Halldór Orri skoraði eitt mark í tíu leikjum á láni hjá Völsungi fyrri hluta sumars en hann lauk lánsdvölinni þar á dögunum.
Í fyrra spilaði Halldór 14 leiki með Þór í 1. deildinni en hann mun núna leika með Dalvík/Reyni í 2. deildinni út tímabilið.

Halldór er þessa stundina í Noregi á reynslu hjá norska 3. deildarliðinu Arendal.
Með honum í för er Ingólfur Árnason sem hefur leikið með Dalvík/Reyni á láni frá Þór í sumar en þeir muna æfa með Arendal í þessari viku.