Fotbolti.net
30.07.13 - 15:15
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Hörður Björgvin lánaður frá Juventus til Spezia (Staðfest)

Hörður Björgvin Magnússon

Hörður Björgvin Magnússon

Canon

Mynd: Juventus

Ítalska meistaraliðið Juventus hefur lánað Hörð Björgvin Magnússon til Spezia sem leikur í Seríu B, en þetta staðfesti Hörður við Fótbolta.net í dag. Spezia keypti þá helmingshlut í Herði eins og tíðgast á Ítalíu.
Hörður, sem er 20 ára gamall varnarmaður, gekk til liðs við Juventus á láni frá Fram árið 2011 áður en hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við ítalska félagið ári síðar.

Hann hefur leikið með unglinga- og varaliði félagsins síðustu ár við góðan orðstír, þar sem hann vann meðal annars ítalska bikarinn og Viareggio-bikarinn.

Hörður hefur þá æft með aðalliði félagsins reglulega frá árinu 2012 og farið í nokkrar æfingaferðir með liðinu, þar sem hann hefur spilað tvo æfingaleiki. Hann var þá í hópnum hjá aðalliðinu sem mætti AC Milan og Sassuolo í TIM-bikarnum á dögunum.

Ljóst var eftir síðustu leiktíð að Hörður myndi fara á láni í sumar, en hann er genginn til liðs við Spezia sem leikur í Seríu B. Hann er láni, en Spezia mun samt sem áður eiga helmingshlut í Herði. Nokkur önnur lið höfðu áhuga á Herði, en tvö lið í Portúgal höfðu meðal annars mikinn áhuga á að fá hann.

Spezia hafnaði í 13. sæti deildarinnar með 51 stig, en liðið var þá nýliði í deildinni eftir að hafa unnið Lega Pro deildina.

Hörður á fjölmarga leiki að baki með yngri landsliðum Íslands, en hann er partur af U21 árs landsliðinu sem tekur þátt í undankeppni Evrópumótsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.