Gigi Becali, eigandi Steaua Bucharesti í Rúmeníu, hefur ákveðið að reka tvo leikmenn frá félaginu eftir að liðinu mistókst að komast áfram í næstu umferð Sambansdeildar Evrópu.
Steaua Bucharesti tapaði fyrir Shakhter Karagandy frá Kasakstan í gær.
Leikurinn fór alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Shakhter hafði betur en Becali ákvað að grípa til róttækra aðgerða með því að reka tvo leikmenn eftir leikinn.
Stipe Vucur og Zdenek Ondrasek spiluðu báðir í gær en þeir sömdu við félagið í sumar. Becali hefur ákveðið að rifta samningnum við leikmennina.
„Stipe Vucur og Zdenek Ondrasek eru farnir. Það verður rift samningnum við þá," sagði Becali eftir leikinn.
Athugasemdir