Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 30. júlí 2021 23:00
Victor Pálsson
Klopp: Gríðarlega mikilvægt skref
Mynd: Getty Images
Þeir Joe Gomez og Virgil van Dijk tóku risastórt skref í gær er Liverpool spilaði við Hertha Berlin í æfingaleik.

Þetta segir stjóri liðsins, Jurgen Klopp, en leikmennirnir sneru til baka eftir meiðsli í 4-3 tapi gegn þýska liðinu.

Bæði Van Dijk og Gomez hafa verið lengi frá vegna meiðsla og misstu af miklu á síðasta tímabili.

Klopp gat brosað er hann sá sína menn snúa aftur í gær en enska deildin hefst þann 14. ágúst næstkomandi.

„Ég er ekki viss, í kringum 260 daga fyrir Virgil og ekki það mikið minna fyrir Joe," sagði Klopp.

„Þeir spiluðu engan fótbolta svo það er mjög gott að fá þá til baka. Þetta var gríðarlega mikilvægt fyrsta skref."
Athugasemdir
banner
banner
banner