30.07.21 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Víkingur Ó. fær varnarmann (Staðfest)

Mynd: Redditch United

Mynd: Redditch United

Víkingur Ólafsvík hefur fengið varnarmann fyrir lokasprettinn í Lengjudeildinni.
Brandon Diau sem skráður er varnarmaður á Transfermarkt. Hann á einnig að geta leyst stöðu fremsta manns.
Diau er hávaxinn, tæpir tveir metrar. Hann er fæddur í Bonn í Þýskalandi en er ættaður frá Kongó.

Hann spilaði síðast með Pandurii í næstefstu deild í Rúmeníu en hefur á sínum ferli einnig spilað í utandeildinni á Englandi, neðri deildum Þýskalands og í Ísrael.
Diau er kominn með leikheimild með Ólafsvíkingum og gæti spilað næsta leik liðsins.
Diau er kominn með leikheimild með Ólafsvíkingum og gæti spilað næsta leik liðsins.