30.07.26 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grindavík fékk þrjá á lokadeginum (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík, sem situr í 9. sæti Lengjudeildarinnar, fékk þrjá leikmenn til sín undir lok félagaskiptagluggans. Glugganum í neðri deildum var skellt í lás í gærkvöldi.
Sóknarmaðurinn Arnar Breki Gunnarsson (2002) kom til Grindavíkur frá ÍBV. Hann hefur spilað 15 leiki í Bestu deildinni í sumar en hefur ekki verið fastamaður í liðinu.
Framherjinn Aron Skúli Brynjarsson (1998) kemur frá Leikni eftir að hann fékk samningi sínum við félagið rift. Hann kom við sögu í tíu leikjum hjá Leikni í sumar.

TENGT EFNI
Rafael Victor aftur í Njarðvík (Staðfest)
Þá kom Ibrahima Camara til Grindavíkur frá Spáni en hann spilaði síðast með U.D. Barbastro í spænsku D-deildinni. Hann þekkir vel til á Suðurnesjum því hann spilaði með Njarðvík tímabilin 2023 og 2024.
Hann er miðjumaður sem fæddur er 1995 og er bæði með ríkisborgararétt á Spáni og í Gíneu.
Hann er miðjumaður sem fæddur er 1995 og er bæði með ríkisborgararétt á Spáni og í Gíneu.
Lengjudeild karla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 22 | +32 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 22 | +25 | 43 |
| 3 | Fylkir | 22 | +13 | 40 |
| 4 | HK | 22 | +12 | 38 |
| 5 | Njarðvík | 22 | +9 | 38 |
| 6 | Leiknir R. | 22 | +1 | 28 |
| 7 | ÍR | 22 | -6 | 28 |
| 8 | Grótta | 22 | -7 | 27 |
| 9 | Vestri | 22 | -13 | 27 |
| 10 | Völsungur | 22 | -12 | 26 |
| 11 | Grindavík | 22 | -10 | 25 |
| 12 | Ægir | 22 | -44 | 9 |

Arnar Breki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Skúli

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson