30.07.26 - 19:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Evrópa: Endurkomusigur hjá Hirti og Kolbeini

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson
Kolbeinn Þórðarson og Hjörtur Hermannsson voru í byrjunarliði sænska liðsins Goteborg sem heimsótti Levadia til Eistlands í seinni leik liðanna í forkeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.
Levadia var með 2-1 forystu eftir fyrri leikinn. Sænska liðið klikkaði á vítaspyrnu undiir lok fyrri hálfleiks en náði að jafna einvígið eftir tæplega klukkutíma leik. Liðið klikkaði á öðru víti undir lok venjulegs leiktíma.

Leikurinn fór í framlengingu þar sem Goteborg skoraði tvö mörk og Levadia klóraði í bakkann. 3-1 sigur Goteborg staðreynd og 4-3 samanlagt. Liðið mætir annað hvort LNZ Cherkasy frá Úkraínu eða Gent frá Belgíu í næstu umferð.
Eggert Aron Guðmundsson, Sævar Atli Magnússon og Kristall Máni Ingason komu allir inn á þegar Brann vann 3-1 sigur á Cluj og saman lagt 5-3. Liðið mætir Apollon frá Kýpur í næstu umferð.
Eyþór Martin Björgólfsson var ekki í leikmannahópi Motherwell þegar liðið vann 3-0 sigur á HB frá Færeyjum og einvígið samanlagt 5-0. Liðið mætir HJK frá Finnlandi í næstu umferð.
Þá var Róbert Frosti Þorkelsson í byrjunarliði GAIS sem steinlá 6-0 gegn Nordsjælland eftir að hafa unnið fyrri leikinn 1-0. Daníel Ingi Jóhannesson var ónotaður varamaður hjá Nordsjælland.
Elías Rafn Ólafsson var í markinu hjá Midtjylland sem tapaði 2-0 gegn Besiktas og samanlagt 3-0 í einvíginu í forkeppni Evrópudeildarinnar.