Tómas hetjan í sögulegum sigri - „Viss um að ég myndi setja hann“

Fagnar marki sínu.

Mynd: EPA

Aldrei hefur lið komið til baka eftir að hafa tapað fyrri leiknum með þremur mörkum á heimavelli.

Mynd: EPA

„Eina sem ég hugsaði um var bara að ná skoti á markið sem endaði svo með marki.“

Mynd: EPA

Gísli Gotti kom inn á hjá Poznan í framlengingunni.

Mynd: EPA

Kominn aftur til AGF.

Mynd: AGF

Fæddur árið 2008.

Mynd: AGF

Sigrinum fagnað innilega.

Mynd: EPA

Fagnar marki sínu.

Mynd: EPA
Hinn átján ára gamli Tómas jafnaði metin í framlengingunni og þar við sat svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni. Þar brást Tómasi ekki bogalistin og skoraði hann af miklu öryggi.
Pólska liðið var með þriggja marka forystu eftir fyrri leikinn sem fór fram í Árósum. Aldrei áður í sögu forkeppni Meistaradeildarinnar hefur lið tapað fyrri leik á heimavelli með þremur mörkum en samt komist áfram.

Evrópa: Tómas Óli skoraði í ótrúlegri endurkomu gegn Gísla Gotta
Í sinni uppáhaldsstöðu
Jafnt var í einvíginu eftir venjulegan leiktíma en þeir pólsku komust yfir snemma í framlengingunni. Tómas kom inn á fyrir landsliðsmanninn Mikael Neville Anderson á 97. mínútu og þremur mínútum síðar var hann búinn að jafna metin.
„Tilfinningin var geggjuð, ég fékk hann eiginlega í minni uppáhaldsstöðu vinstra megin, og það eina sem ég hugsaði um var bara að ná skoti á markið sem endaði svo með marki.“
Szybka odpowied? Aarhus. T. O. Kristjansson na 4-1. W dwumeczu znowu remis. Czy b?d? karne? pic.twitter.com/BMVvyZMEol
— AmerykaPL (@PLAmeryka) July 29, 2026
Viss þegar hann labbaði á punktinn
Jafnt var að lokinni framlengingu og þurfti því að grípa til vítaspyrnukeppni til að skera úr um sigurvegarann. Tómas var öryggið uppmálað á vítapunktinum og smellti boltanum upp í samskeytin.
„Ég neita því ekki að það var smá stress en ég held að það sé hjá öllum leikmönnum sem taka víti í svona stórum leik, en ég var viss um það að ég myndi alltaf setja hann þegar ég labbaði á punktinn,“ segir Tómas en hægt er að sjá vítið hér að neðan.
???????? Qué absoluto milagro acaba de hacer el Aarhus en su retorno a la #UCL 39 años después.
— Camino al fútbol europeo (@CaminoUEFA) July 29, 2026
Tras perder 0-3 la ida en casa, parecía que su retorno iba a ser un desastre. Pues ha ganado en el estadio del Lech Pozna? 1-4 y se ha clasificado en los penaltis.pic.twitter.com/tsYke9OTD5
Draumurinn að spila í Meistaradeildinni
AGF mætir Sabah FK frá Aserbaísjan í næstu umferð. Með sigri gærkvöldsins er liðið tryggt í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.
Tómas segir það drauminn að spila í Meistaradeildinni en svo að draumurinn raungerist þá þarf AGF að vinna Aserana og einvígið þar á eftir.
„Það verður bara annað skemmtilegt einvígi sem við erum bara spenntir fyrir. Ef við spilum okkar leik þá eru möguleikarnir bara góðir á að komast áfram úr því einvígi. Fókusinn er svo bara á þá leiki og svo sjáum við bara til eftir það en draumurinn er alltaf að spila í Meistaradeildinni,“ segir Tómas.
Spenntur fyrir komandi tímabili með Mikael
AGF eru danskir meistarar en nýtt tímabil í Danmörku var að hefjast. Á síðustu leiktíð lék Tómas tíu leiki í deildinni með AGF. Hann segist þurfa að grípa tækifærin þegar þau koma.
„Markmiðið er bara að bæta mig sem leikmann og reyna að hjálpa liðinu eins mikið og ég get. Auðvitað vilja allir fótboltamenn spila alla leiki, en þá þarf ég bara að nýta tækifærin þegar þau koma.“
Mikael Neville Anderson sneri nýverið aftur í raðir AGF eftir árs fjarveru. „Það er frábært að hann sé kominn aftur. Að fá að spila og æfa með honum er geggjað,“ segir Tómas að lokum.

Aldrei hefur lið komið til baka eftir að hafa tapað fyrri leiknum með þremur mörkum á heimavelli.

Mynd: EPA

„Eina sem ég hugsaði um var bara að ná skoti á markið sem endaði svo með marki.“

Mynd: EPA

Gísli Gotti kom inn á hjá Poznan í framlengingunni.

Mynd: EPA

Kominn aftur til AGF.

Mynd: AGF

Fæddur árið 2008.

Mynd: AGF

Sigrinum fagnað innilega.

Mynd: EPA
