Fotbolti.net
30.07.26 - 20:29
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sambandsdeildin: Frederik varði víti undir lokin og Valur fór áfram

Sambandsdeildin: Frederik varði víti undir lokin og Valur fór áfram
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Zrinjski Mostar 2 - 2 Valur (2-3 samanlagt)
1-0 Nemanja Bilbija ('11 , víti)
1-1 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('44 )
1-2 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('45 )
2-2 Matej Sakota ('75 )
2-2 Nemanja Bilbija ('88 , misnotað víti)
Lestu um leikinn
Valur er komið áfram í forkeppni Sambandsdeildarinnar eftir jafntefli gegn Zrinjski Mostar í Hersegóvínu í kvöld.

Zrinjski Mostar jafnaði metin í einvíginu snemma leiks þegar liðið fékk vítaspyrnu eftir að boltinn fór í höndina á Birki Heimissyni.

Valsmenn tóku forystuna aftur undir lok fyrri hálfleiks þegar Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði með frábæru skoti í fjærhornið fyrir utan teiginn. Stuttu síðar bætti hann við öðru markinu, í þetta sinn var hann inn í teig en skotið í sama hornið.

Heimamenn byrjuðu sterkt í seinni hálfleik og boltinn fór í stöngina í tvígang.

Þeim tókst að jafna leikinn og minnka muninn í einvíginu þegar Matej Sakota skoraði eftir að hafa verið nýkominn inn á sem varamaður.

Zrinjski fékk vítaspyrnu undir lokin þegar Bjarni Mark Antonsson gerðist brotlegur. Frederik Schram gerði sér hins vegar lítið fyrir og varði spyrnuna.

Ingimar Torbjörnsson Stöle hefði getað innsiglað sigurinn í blálokin þegar hann slapp í gegn en skotið slakt. Það kom ekki að sök því Valur vann einvígið.

Valur mætir danska liðinu Nordsjælland í næstu umferð en Nordsjælland vann GAIS 6-0 í kvöld eftir að hafa tapað fyrri leiknum 1-0.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.