30.08.13 - 14:35
Magnús Már Einarsson
Erik Lamela til Tottenham (Staðfest)
Dýrasti leikmaður félagsins frá upphafi

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur keypt Erik Lamela kantmann Roma á um það bil 30 milljónir punda.
Lamela er nú dýrasti leikmaður Tottenham frá upphafi en fyrra metið átti Roberto Soldado sem kom frá Valencia á 26 milljónir punda fyrr í sumar.

Hinn 21 árs gamli Lamela skoraði 15 mörk í 33 leikjum í Serie A á síðasta tímabili.
Lamela kom til Roma frá River Plate árið 2011 en hann á þrjá landsleiki að baki með Argentínu.
Lamela er annar leikmaðurinn sem Tottenham fær í sínar raðir í dag en í morgun kom rúmenski varnarmaðurinn Vlad Chiriches til félagsins frá Steaua Búkarest.

Heimild: Sky