30.08.20 - 10:03
Ívan Guðjón Baldursson
Doherty kominn til Tottenham (Staðfest)

Doherty hefur skorað 15 mörk í síðustu 95 leikjum með Wolves.

Mynd: Getty Images

Tottenham er búið að staðfesta komu írska bakvarðarins Matt Doherty til félagsins. Tottenham borgar um 15 milljónir punda fyrir Doherty sem er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning.
Félagaskiptin hafa legið í loftinu undanfarna daga og kemur lágt kaupverð mörgum knattspyrnusérfræðingum á óvart þar sem Doherty hefur verið gríðarlega öflugur síðustu ár með Úlfunum.
Nuno Espirito Santo, stjóri Wolves, vill skipta um bakvörð og hefur verið að reyna að krækja í Ainsley Maitland-Niles frá Arsenal, sem hafnaði 15 milljón punda tilboði í hann á dögunum.
Doherty er 28 ára og hefur spilað yfir 300 leiki á 7 og hálfu ári hjá Wolves en hann á aðeins 9 A-landsleiki að baki fyrir Írland.
Írska félagið Bohemians, uppeldisfélag Doherty, fær um það bil 1,5 milljón punda vegna skiptanna. Það er gífurlega há upphæð fyrir lið í írska boltanum.

It's time to #WelcomeDoherty! ✍️ pic.twitter.com/NOE5EEvMoA
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) August 30, 2020