Fotbolti.net
30.08.21 - 16:22
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Bakayoko til AC Milan (Staðfest)

Bakayoko í leik gegn Juventus tímabilið 2018–2019.

Bakayoko í leik gegn Juventus tímabilið 2018–2019.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan hefur tilkynnt að Tiemoue Bakayoko sé kominn aftur til félagsins frá Chelsea á tveggja ára lánssamningi. Milan á möguleika á því að kaupa miðjumanninn eftir tímabilið.

Bakayoko var á láni hjá AC Milan tímabilið 2018–2019 en á síðasta tímabili var hann lánaður til Napoli.

Bakayoko fór í læknisskoðun í gær og gengið var frá samningi í dag.

Hann gekk í raðir Chelsea frá Mónakó í júlí 2017 en náði ekki að festa sig í sessi hjá Lundafélaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.