Fabrizio Romano greinir frá því að Real Madrid sé í viðræðum við Rennes um kaup á franska miðjumanninum Eduardo Camavinga.
Kaupverðið talið vera 30 milljónir evra. Hann mun skrifa undir samning til 2026.
Þessi 18 ára gamli miðjumaður á að baki þrjá A-landsleiki. Hann lék með u21 landsliðinu á EM í sumar.
Camavinga er gríðarlega efnilegur en hann hefur verið orðaður við öll stærstu félög evrópu í sumar. Man Utd hefur verið mest nefnt til sögunnar í þeim efnum.
Athugasemdir