Fotbolti.net
29.08.26 - 20:29
Guðmundur Jónasson

Ian Jeffs: Þetta er eitthvað sem þið í fjölmiðlum eruð búin að vera búa til og tala um

Auglýsing
Ian Jeffs þjálfari Blika

Ian Jeffs þjálfari Blika

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Breiðablik tapaði á heimavelli gegn ÍBV í dag í mikilvægum leik fyrir titilbaráttuna.

Fótbolti.net var á staðnum og tók stöðuna á Ian Jeffs beint eftir leik.

Þið tapið 2-1 ég ætla gera ráð fyrir að þú sért svekktur núna í leikslok.

„Ég er bara mjög svekktur, svekktur með leikinn og úrslitin og bara nánast allt en eina sem ég er ekki svekktur með er viðbrögðin í seinni hálfleik þar fannst mér við sýna smá karakter, vilja og baráttu."

Var einhver þreyta eftir evrópuleikinn, afhverju komuð þið svona til leiks í dag?

„Ég veit ekki, ég þarf bara ræða við leikmenn núna eftir leik og fara aðeins yfir þetta. Mér fannst þetta slakasta frammitaða sem ég hef séð í sumar. Mér fannst vanta bara alla baráttu og ÍBV vann bara 1,2 og 3 bolta og sýndu meiri baráttu en við og við áttum engin svör við því, það hefði verið sanngjarnt að það hefði verið 2 til 3-0 í hálfleik."

Fenguð mikið af hornspyrnum, ertu ósáttur með hvernig þið nýttuð föstu leikaatriðin í dag?

„Þetta er eitthvað sem þið í fjölmiðlum eruð búin að vera búa til og tala um. Maður verður bara að sýna að maður vill ná að skalla boltann inni í teig en því miður erum við ekki búin að vera ger það nógu vel og þess vegna erum við ekki að ná að skora úr hornspyrnum þetta er bara það einfalt."

Þið eruð ennþá á toppnum en FH á leik til góða, stefnir þetta í tveggja hesta kapphlaup til enda?

„Eins og staðan er í dag já, ef við sýnum sömu frammistöðu og í fyrri hálfleik í dag þá getum við bara gleymt því. Við þurfum að fara yfir leikinn og laga það sem við gerðum illa í dag fyrir næsta leik."

Lestu um leikinn

Viðtalið má sjá hér í spilaranum fyrir ofan

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik17+2536
2FH16+2333
3ÍBV17-227
4Stjarnan17+526
5Þróttur R.17-322
6Grindavík/Njarðvík17-522
7Þór/KA17-319
8Fram17-1619
9Víkingur R.17-1217
10Valur16-1216
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.