Fotbolti.net
30.08.26 - 10:18
Brynjar Ingi Erluson

Nökkvi aftur til Telstar (Staðfest)

Nökkvi aftur til Telstar (Staðfest)
Canon

Mynd: Telstar

Nökkvi Þeyr Þórisson er kominn aftur til Telstar á láni frá Spörtu Rotterdam út tímabilið. Bæði félög staðfestu félagaskiptin á samfélagsmiðlum sínum.
Nökkvi er 27 ára Dalvíkingur sem lék með Dalvík/Reyni og KA hér heima áður en hann hélt út í atvinnumennsku fyrir fjórum árum og samdi við Beerschot í Belgíu.

Hann stóð sig vel þar og vann sér inn félagaskipti til St. Louis í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Eftir tvö ár þar gekk hann til liðs við Spörtu Rotterdam á láni og voru félagaskiptin síðar gerð varanleg.

Nökkvi lék seinni hluta síðasta tímabils sem lánsmaður hjá Telstar þar sem hann skoraði eitt mark í átta leikjum áður en hann sneri aftur til Spörtu.

Hann hefur komið við sögu í þremur leikjum á þessu tímabili og komið að tveimur mörkum. Nökkvi skoraði eitt og lagði upp annað gegn Telstar, en snýr nú aftur til félagsins á láni frá Spörtu út tímabilið.

Telstar er í 13. sæti deildarinnar með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.