Fotbolti.net
30.09.13 - 19:30
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Roberto Mancini tekinn við Galatasaray (Staðfest)

Roberto Mancini.

Roberto Mancini.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalinn Roberto Mancini hefur verið ráðinn sem stjóri tyrkneska liðsins Galatasaray. Hann skrifaði undir þriggja ára samning hjá félaginu.
Mancini tekur þar við af Fatih Terim, en sá var rekinn frá félaginu í síðustu viku eftir að hann náði ekki samkomulagi við félagið um nýjan samning.

Hinn 48 ára gamli Mancini hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Manchester City undir lok síðasta tímabils. Þar tókst honum að vinna enska meistaratitilinn og enska bikarinn yfir þriggja ára tímabil.

Galatasaray hefur einungis unnið einn af fyrstu sex leikjum á tímabilinu, en liðið inniheldur stórstjörnur á borð við Didier Drogba, Wesley Sneijder og Emmanuel Eboue.

Fyrsti leikur Mancini við stjórn verður gegn Ítalíumeisturum Juventus í Meistaradeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.